mánudagur, júlí 31, 2006
4 dagar til stefnu...
úfff það styttist óðum í Eyjar, og er ég orðin alveg rosa spennt. Í kvöld ætlum við að tjalda tjaldinu bara til að ath. að það sé nú í lagi, eins gott enda spáð roki og rigningu í Eyjum. Ég held í þá von eftir að hafa heyrt viðtal við Sigga Storm, sem nb. er búin að gera veðurfréttir skemmtilegar, að það getur allt breyst í vikunni. Persónulega er mér sama um rigningu ef það er ekki í bland við heví rok. Vona bara það besta.
Annars gæsuðum við Steinunni um helgina og þvílíka snilldin, þetta var alveg mega gaman hjá okkur, endaði reyndar heima um hálf 2 sökum ölvunar en.......
Svo gengur okkur fitnessbollunum bara rosa vel í hlaupinu komnar upp í 7,5km þannig að við erum skráðar í 10 km eftir 19 daga, það verður erfitt en vel þess virði. Mitt 30.000 framlag frá Glitni fer til UNIFEM, alltaf gaman að gera e-ð svona fyrir góðgerðarstarfsemi.
Svo er ég ekki alveg sátt við kommentaleysið ég skrifa hérna inn hverja snilldar færsluna á eftir annarri og fæ jú kannski í mesta lagi 2 komment, sorrí ppl mí þínk jú ar leim.....
Koma svo..........
Cheers